Jæja þá er að koma að þessu hjá okkur. Veðurspá er okkur ekkert sérstaklega hagstæð en ef veður verður í lagi og aðstæður þá er dagskráinn hér sem segir.
Þau sem lagnar að keira í Varmahlíð frá Króknum mæti kl 13.00 Og við dólum okkur frammeftir.
Síðan verður safnast saman á planinu við KS Varmahlíð. kl:13:30. Séra Gísli Gunnarsson verður með hugvekju eins og tíðkast hefur undanfarin ár. Þaðan verður hjólað saman út á Krók þar sem boðið verður upp á kaffi og lummur hjá maddömunum við Minjahúsið