Þessi er nokkuð góður :O)
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/ef-allt-klikkar-tha-ma-alltaf-fynna-lausnir/
Mar 27
Fundagerð aðalfundar 2015
Aðalfundur Vélhjólafélags Smaladrengja haldinn í Bóknámshúsi FNV miðvikudaginn 25. mars kl. 20:00
Svavar Sigurðsson var kjörinn fundarstjóri og Þorkell V. Þorsteinsson var kjörinn ritari.
- Skýrsla stjórnar
Formaður flutti skýrslu stjórnar og rakti helstu viðburði ársins þ.á.m. ferðalög og aðra viðburði á borð við kynningarfund um ferðalög erlendis sem haldinn var 4. febrúar s.l. Fram komu óskir um að fleiri slíkir viðburðir verði haldnir. Þá kom fram að áhugi væri að skoða ferð til Færeyja næsta sumar. Fram kom að 44 félagar greiddu árgjaldið og teljast þar með fullgildir félagar.
Fram kom í umræðum að gera mætti fimmtudagsrúntana markvissari með því að tilkynna sama dag um hvert skuli haldið með SMS til félagsmanna. Tillaga kom fram um að heimsækja Húnvetninga og Siglfirðinga oftar og skipuleggja heimsóknir í fyrirtæki og á söfn á borð við Hafíssetrið og fleiri staði. Þá kom fram tillaga um hringferð um Tröllaskaga snemma í vor t.d. í lok maí eða byrjun júní.
- Endurskoðaðir reikningar.
Páll Stefánsson, gjaldkeri, kynnti reikninga félagsins og bar þá upp til samþykktar. Hagnaður var upp á rúmlega 111.000 krónur. Inneign á reikningum kr. 525.181. Reikningar félagsins voru samþykktir samhljóða.
- Kosning formanns kosning í nefndir og ráð.
Svavar sigurðsson var endurkjörinn formaður til eins árs.
Steinn Elmar Árnason var kjörinn ritari.
Páll Stefánsson var kjörinn gjaldkeri.
Björn Þórisson var kjörinn meðstjórnandi.
Baldur Sigurðsson var kjörinn merkisberi.
Trausti Helgason var kjörinn skoðunarmaður reikninga.
Í ferðanefnd voru kjörnir:
Elmar Sveinsson
Guðmundur R. Stefánsson
Þorkell V. Þorsteinsson
Í netsíðunefnd voru kjörnir:
Elmar Sveinsson
Gísli Eyland Sveinsson
Pétur Ingi Björnsson
- Önnur mál.
Undir liðnum önnur mál var m.a. rætt um möguleika á að leigja húsnæði undir félagsaðstöðu og hjólageymslu sem yrði rekin af þeim sem hana nýttu. Rætt var um að gera könnun meðal félagsmanna um það hverjir hefðu á því áhuga.
Rætt um ferðalög og fyrirkomulag þeirra. Ferðanefndin óskaði eftir tillögum um ferðir. Fram kom áhugi á ferði til Færeyja næsta sumar sem yrði undirbúin næsta haust. Þá kom fram áhugi á að efna til 3ja – 4ra daga ferðar t.d. um Vestfirði í sumar. Ferðanefnd var falið að kanna slíka möguleika.
Fleira ekki gert og fundi slitið.
Þorkell V. Þorsteinsson
Björgvin Guðmundsson
Björn Þórisson
Elmar Sveinsson
Gunnar Ingi Gunnarsson
Ingólfur Arnarson
Kristján Óli Jónsson
Páll Stefánsson
Svavar Sigurðsson
Trausti Jóel Helgason
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/adalfundur-2015/
Mar 25
Breitt tímasetning aðalfundar
Kæru smalar vegan óviðráðanlegra orsaka verður fundurinn kl 20.00 í stað kl 18.00 Sami dagur (í kvöld) sami staður. Kveðja Stjórnin.
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/breitt-timasetning-adalfundar/
Mar 11
Aðalfundur Smaladrengja 2015
Aðalfundur Smaladrengja 2015 verður haldinn í Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauðárkróki miðvikudaginn 25.03 kl 18:00.
Dagskrá aðalfundar er hefðbundin:
• Kosning fundarstjóra og fundarritara
• Inntaka nýrra félaga.
• Stjórn og nefndir gefa skýrslu um starfsemi liðins árs.
• Stjórnin leggur fram endurskoðaða reikninga liðins árs.
• Kosning formans, stjórnar, varamanna og skoðunarmanns reikningshalds.
Stjórnin
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/adalfundur-smaladrengja-2015/
Feb 05
Nokkrar myndir frá fundi FNV sem fjallaði um ferðir erlendis.
Hérna koma nokkrar myndir frá fundinum 4 febrúar sem halin var í bóknámshúsi FNV um ferðir félaga okkar erlendis, það var vel sótt af áhugafólki um hjólamennsku og gaman að hlusta á frásagnir Guðmundar Stefánssonar og Pétur I Björnssonar af ferðum þeirra sem þeir hafa farið í annarsvegar um Evrópu og hinsvegar um Bandaríkin. Læt nokkrar mydnir fljóta með þökk fyrir skemmtilegt kvöld og samveruna.
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/nokkrar-myndir-fra-fundi-fnv-sem-fjalladi-um-ferdir-erlendis/