Nú er það spurning um hvort fólk hefur áhuga að renna suður á Ljósanótt dagskráinn er eftirfarandi.
LJÓSANÓTT Í REYKJANESBÆ !!
Georg Hafsteinn GeorgssonErnir Bifhjólaklúbbur Suðurnesja
Ljósanótt 2015
Þá er komið að okkar árlega Ljósanætur hitting í Reykjnesbæ.
Við byrjum í grilli hjá Olís kl 13:00, þar verða grillaðar pulsur og boðið upp á gos. Ernir ætla að bjóða einnig upp á kaffi fyrir þá sem vilja.
Kl 14:00 verður tekin smá rúntur, farið frá Olís og keyrt til Sandgerðis og Garðs og aftur síðan á Olís planið. Ekki verður stoppað á leiðinni
Kl 15:00 verður farið í hópakstur niður Hafnargötuna og stoppað á SBK-planinu eins og undirfarin ár.
Þar verður öllum hjólum stillt upp eins og á myndinni hérna fyrir neðan.
Allir verða að virða þessa uppröðun því hún gengur vel fyrir sig og veldur ekki vandræðum.
Við vonum að sem flestir komi og hafa góðan dag með okkur.
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/ljosanott-reykjanesbae/
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/gauksmyri-myndir/
Smalar þá er það Gauksmýri á morgun þriðjudag 25.08 Mæting á N1 a Króknum kl 17.30 og þaðan rennum við á N1 á Blönduósi (vonandi bætist þar í hópinn ) og svo árfam.
Þeir sem ákveðnir eru að fara hafið samband við Trausta í síma 8626242 svona uppá matinn sem kostar 4500 á mann.
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/gauksmyri-a-morgun-thridjudaginn-25-08/
Ég hef veið beðin um að kanna áhuga fólks um að renna til Gauksmýri og borða þar og renna svo aftur heim, það er spurning um að þeir sem áhuga hafa að fara hafi samband við mig í 899-2090 svo við getum undirbúið ferðina og eins upp á fjölda vegna matar í Gauksmýri. Dagsetning hefur ekki alveg verið ákveðin enþá en okkur langar að kanna hvort áhugi er fyrir hendi. Svavar Sig 899-2090
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/gauksmyri-4/
Við skoðum hvernig veðrið verður seinni partinn og ef veður er sæmilegt þá rúntum við eitthvað. Ég sendi út SMS þegar að líður á daginn.
Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/fimmtudagsruntur-13-08/