Aðalfundur 2018

Aðalfundur Vélhjólafélags Smaladrengja haldinn í Bóknámshúsi FNV mánudaginn 16. aprí 2018 kl. 19:00. 
Símon Skarphéðinsson var kjörinn fundarstjóri og Þorkell V. Þorsteinsson var kjörinn ritari.

1. Skýrsla stjórnar

Formaður flutti skýrslu stjórnar. Upp úr stóðu fimmtudagsrúntarnir, en að öðru leyti er vísað til áætlunar ferðnefndar.

Umræður um fimmtudagsrúntana. Rætt um að heimsækja Óskar og Björgu eins og í fyrra, en þau hafa boðið Smaladrengjum í heimsókn til sín í sumar, en mönnum er enn í fersku minni höfðinglegar móttökur þeirra hjóna í fyrra. Rætt var um að flýta tímasetningu á rúntunum seinni part sumars um eina klukkustund til að nýta birtutímann betur.

2. Endurskoðaðir reikningar.

Páll Stefánsson fluttir skýrslu gjaldkera. Skuldir og eigið fé nema kr. 755.397. Reikningarnir samþykktir samhljóða. Samþykkt að félagsgjöld verði óbreytt og stjórninni falið að nota fjármuni félagsins til að greiða fyrir aðgangseyri að söfnum og þess háttar á ferðalögum félagsins.

3. Kosning í nefndir og ráð.

Björn Ingi Björnsson var kjörinn formaður til tveggja ára.
Þorkell V. Þorsteinsson var kjörinn ritari. 
Páll Stefánsson var kjörinn gjaldkeri. 
Björn Þórisson var kjörinn meðstjórnandi. 
Baldur Sigurðsson var kjörinn merkisberi. 
Trausti Helgason var kjörinn skoðunarmaður reikninga.

Í ferðanefnd voru kjörnir:

Elmar Sveinsson 
Guðmundur R. Stefánsson 
Svavar Sigurðsson

Í netsíðunefnd voru kjörnir:

Björn Ingi Björnsson 
Svavar Sigurðsson 
Valgeir M. Valgeirsson

4. Önnur mál.

Samþykkt að endurvekja heimasíðu félagsins og Birni Inga falið að kanna möugleika í þeim efnum. Netsíðunefndinni var falið að útfæra uppsetningu síðunnar m.a. með tilliti til aðgangs að henni og heimildir til að setja inn á hana efni.

Fleira ekki gert og fundi slitið.

Þorkell V. Þorsteinsson

Björn Þórisson Svavar 
Sigurðsson 
Páll Stefánsson 
Björn Ingi Björnsson 
Baldur Sigurðsson 
Elmar Sveinsson 
Trausti Jóel Helgason 
Kristján Óli Jónsson

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/adalfundur-2018/

Sumardagurinn fyrsti

Ágætu Smaladrengir

Upphaf sumarvertíðarinnar verður að venju við Fallið, minnismerki um fallna bifhjólamenn, í Varmahlíð sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 19. apríl kl. 13:00. Séra Gísli Gunnarsson mun flytja þar hugvekju fyrir komandi hjólavertíð.

Haldið verður frá N1 á Króknum kl. 12:30. Að lokinni hugvekju verður haldið að Maddömukoti og staldrað þar við áður en haldið verður að Samgönguminjasafninu í Stóragerði en þar er hægt að kaupa dýrindis kaffiveitingar.

Allt bifhjólafólk er velkomið.

F.h. stjórnar
Smaladrengur nr. 19

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/sumardagurinn-fyrsti-9/

Aðalfundur Smaladrengja 2017

Aðalfundur Smaladrengja 2017 verður haldinn í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki mánudaginn 6. mars kl. 20:00.

 

Dagskrá aðalfundar er hefðbundin:

 

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara
  • Inntaka nýrra félaga.
  • Stjórn og nefndir gefa skýrslu um starfsemi liðins árs.
  • Stjórnin leggur fram endurskoðaða reikninga liðins árs.
  • Lagabreytingar.

-Kosning formanns

  • Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanns reikningshalds
  • Kosning nefnda.
  • Önnur mál.

 

Ég hvet alla félaga til að sýna sig og sjá aðra félaga án hjálms og hlífðarfata. Auðvitað verður boðið upp á pizzu og gos að hætti Smaladrengja.

 

Með bestu kveðju

 

f.h. formanns

 

Smaladrengur nr. 19

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/adalfundur-smaladrengja-2017/

Fyrsti maí.

Fyrsti mai var pínu kaldur en sólríkur,  sjö hjól mættu á rúntinn og fórum við hringinn í firðinum.  Það var boðið uppá smá haglél og smá rigningu og sól þar á milli,  þannig að það var allt í boði,  stoppuðum pínu í Varmahlíð áður en við fórum Blönduhlíðina heim aftur en tókum smá hring í bænum áður en við héldum heim á leið.

Svavar #76

 

Ps: Mig vantar myndir og það væri frábært ef þið sem tókuð myndir settuð þær á facbook síðuna og ég fæ þær svo lánaðar hingað.

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/fyrsti-mai-2/

Sumardagurinn fyrsti

Ef veður og færð leifir þá ætlum við að hittast hjá N1 á Sauðárkróki á fimmtudaginn.  lagt verður af stað kl 12.30 og farið í Varmahlíð.

Séra Gísli ætlar svo að vera með hugvekju eins og undanfarin ár við Fallið kl 13.00.  Þeir sem ætla að koma beint þangað komi aðeins fyrir kl 13.00 og svo rennum við í Krókinn á svipaðan hátt og undanfarin ár.

Permanent link to this article: https://www.smaladrengir.is/sumardagurinn-fyrsti-8/