Aðalfundur Smaladrengja 2017 verður haldinn í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki mánudaginn 6. mars kl. 20:00.
Dagskrá aðalfundar er hefðbundin:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Inntaka nýrra félaga.
- Stjórn og nefndir gefa skýrslu um starfsemi liðins árs.
- Stjórnin leggur fram endurskoðaða reikninga liðins árs.
- Lagabreytingar.
-Kosning formanns
- Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanns reikningshalds
- Kosning nefnda.
- Önnur mál.
Ég hvet alla félaga til að sýna sig og sjá aðra félaga án hjálms og hlífðarfata. Auðvitað verður boðið upp á pizzu og gos að hætti Smaladrengja.
Með bestu kveðju
f.h. formanns
Smaladrengur nr. 19