Vegna rafmagnsleysis var allt netsamband úti hjá mér og ég náði ekki að senda út SMS en engu að síður var þokkalega mætt og rendum við í Starrastaði í Lýdó nánar til tekið í Starrastaði þar sem er gróðrastöð, maður getur alltaf á sig blómum bætt var einhvertíman sagt. á bakaleiðinni var svo stoppað í Vörmuhlíðinni og spjallað og drukkið kaffi eða borðaður ís og þar á eftir farið brautina út á Krók. Það voru vegaframkvæmdir sem við fórum varlega í gegnum vandræðalaust.
Takk fyrir samveruna sjáumst næsta fimmtudag.
Svavar #76