Vélhjólaklúbbur Skagafjarðar hefur boðið Smaladrengjum til kynningar á starfsemi sinni í klúbbhúsi þeirra við motorkrossbrautina í norðanverðum Nöfunum. Kynningin fer fram miðvikudaginn 14. ágúst kl. 20:15. Boðið verður upp á kaffiveitingar.
Ferðanefndin skorar á félagsmenn að fjölmenna og leggur til að menn hittist við Ábæ á fákum sínum kl. 20:00 og aki í saman á fundarstað.
Kveðja
Ferðanefndin