Aðalfundur Véhjólafélags Smaladrengja haldinn 4. apríl 2013 í Bóknámshús FNV
Svavar Sigurðsson, formaður setti fundinn og minntist fallinna félaga, þeirra Egils Benediktssonar og Snæbjörns Adolfssonar. Þá bauð hann nýja félaga velkomna.
- Svavar Sigurðsson var kosinn fundarstjóri og Þorkell V. Þorteinsson var kosinn fundarr ritari.
- Gjaldkeri kynnti reikninga félagsins. Reikningar félagsins voru samþykktir einróma.
- Stjórn og nefndir gefa skýrslu um starfsemina.
- Svavar gerði grein fyrir ferðum félagsins.
- Þorkell gerði grein fyrir ferð í júnímánuði um Vesturland.
- Svavar taldi fimmtudagsrúntinn vera kominn til að vera, en fannst heldur fámennt í helgarferðir.
- Rætt um heimasíðuna og fyrirkomulag hennar. Pétur Ingi lagði til að gerð yrði ný heimasíða í Word Press forritinu.
- Lagabreytingar sem samþykktar voru einróma:
- 3. grein verði „Þeir einir teljast fullgildir félagar sem greitt hafa félagsgjöld“. Samþykkt einróma.
- „að vera minnst 21 árs gamall“ falli út. Samþykkt einróma.
- „að hafa réttindi til aksturs stórra bifhjóla“ falli út. Í staðinn komi „að hafa réttindi til aksturs bifhjóla, eða vera tengdur félaginu“. Samþykkt einróma.
- „að vera ekki meðlimur / aðili að ólöglegum vélhjólasmatökum“ komi inn. Samþykkt einróma.
- „að vera reyklaus“ falli út. Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum nema einu.
- „hafi sótt um aðild til stjórnar“ falli út. Samþykkt einróma.
- 12. Grein. „Innifalið í gjaldinu er félagsskírteini“ fellur út. Samþykkt einróma.
- Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanns reikninga.
- Eftirtaldir voru kosnir í stjórn, sem skipar með sér verkum:
i. Páll Stefánsson
ii. Sigurður Baldursson
iii. Björn S. Þórisson
iv. Steinn Elmar Árnason
- Trausti Jóel Helgason var kosinn skoðunarmaður reikninga.
- Baldur Sigurðsson, Þorkell V. Þorsteinsson og Kristján Óli Jónsson voru kosnir í ferða- og skemmtinefnd.
- Pétur Ingi Björnsson, Páll Stefánsson og Þorkell V. Þorsteinsson voru kosnir í neðsíðunefnd.
- Önnur mál
- Samþykkt að styrkja Madömmukot um kr. 50.000. Rætt um að afhenda gjöfina og vekja athygli á henni á Sumardaginn fyrsta .
- Formaður kynnti umræður um innheimtu félagsgjalda. Sent verður út SMS og kvaðning sett í heimabanka í formi valkröfu. Gjalkera falið að annast málið.
- Samþykkt að hækka félagsgjaldið í kr. 2.500.
- Rætt um stöðu félagsins gagnvart þeim sem ekki búa i Skagafirði. Svavar greindi frá ónægju Siglfirðinga með að starfsemina.
- Rætt um merki félagsins og hugmyndir um að skerpa útlínur merkisins.
Fleira ekki gert og fundi slitið
Þorkell V. Þorsteinsson
Baldur Sigurðsson
Birgir Hreinsson
Björgvin Guðmundsson
Björn S. Þórisson
Ingólfur Arnarson
Kristján Óli Jónsson
Páll Stefánsson
Pétur Ingi Björnsson
Símon Skarphéðinsson
Svavar Sigurðsson
Trausti Jóel Helgason
Valgeir Valgeirsson