Fimmtudagsrúnturinn í gær endaði með að við hjóluðum á fjórum hjólum í Varmahlíð, fórum yfir Vatnskarð í pínu frosti (Eins gott að vera ekki eins og horaður köttur þegar að lagt er í svona túr) út Langadal í Blöndós……KAFFI þaðan yfir þverárfjall (aftur pínu frost) og aftur heim á Krók með smá stoppi á leiðinni (undirritaður að verða bensínlaus).
Stopp hjá Bjarna Har (bensín) og þaðan heim. Helstu kjaftasögur í bænum voru ræddar og fleirra spennandi sem maður fær ekkert að vita um nema með að mæta .
Takk fyrir skemmtilegan rúnt og sjáumst á næsta fimmtudag kveðja Svavar #76.